Kennsluhættir
Í Háaleitisskóla er nemandinn í öndvegi og lögð er á það áhersla að jafnt nemendur sem starfsmenn eigi góð og gefandi samskipti. Markvisst er unnið að því að auka félagsfærni nemenda, seiglu og trú nemenda á eigin getu. Starfsumhverfi skólans gerir kröfu um að menn hugsi í hentugum lausnum og temja sér sveigjanleg vinnubrögð sem einkennast af víðsýni og umburðarlyndi. Allir eiga að finna sig heima í skólanum, þeir eiga að finna þar fyrir velvild og hlýju og vita að í skólanum er skjól og stuðning að finna. Við þær aðstæður tekst að skapa gott námsumhverfi fyrir nemendur um leið og stuðlað er að gagnkvæmri aðlögun innflytjenda og innfæddra í skólanum.
Erfiðleikar í samskiptum/hegðun
Ef upp koma erfiðleikar í samskiptum/hegðun sem þó ekki teljast einelti:
- Foreldrar tali við barn/börn sín, kennari eða námsráðgjafi ræði við börnin.
- Fylgst verður með hegðun barnanna í skólastofunni og öðrum skólaaðstæðum.
- Skólinn og foreldrar hafa samráð um hvaða leiðir skulu farnar ef vísbendingar eru um að gamalt mál sé að taka sig upp.
- Heimili og skóli skerpi á einstaka samskiptaþáttum við börnin á heimili og í skóla.